Icelandair til Tampa og Philadelphia

Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til bandarísku borganna Philadelphia og Tampa á næsta ári og er sala farseðla þegar hafin. Borgirnar eru sautjándi og átjándi áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu. Flugið til Philadelphia hefst  30. maí og stendur til 20. september, en flugið til Tampa er heilsársflug sem hefst 6. september á næsta hausti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair. 

Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2017 verður um 13% umfangsmeiri en á þessu ári. Áætlað er að farþegar verði um 4,2 milljónir á árinu 2017 og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Alls verða 30 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, en tvær Boeing 767 vélar bætast við flotann.

Philadelphia er ein af þekktustu borgum Bandaríkjanna, en hún tilheyrir Pennsylvaniufylki og er mitt á milli New York og Washington. Phildadelphia er einn af helstu sögustöðum Bandaríkjanna er bæði sjálfstæðisyfirlýsingin og stjórnarskráin voru staðfest og undirrituð þar. Borgin er ein sú stærsta í Bandaríkjunum en íbúafjöldi hennar og næsta nágrennis er um 7,2 milljónir. Flogið verður fjórum sinnum í viku næsta sumar á alþjóðaflugvöllinn í borginni, sem er meðal umferðarmestu flugvalla Norður-Ameríku.

Falla vel að leiðakerfi félagsins

Tampa í Florida stendur við Mexíkóflóann og er miðstöð stjórnsýslu og þjónustu fyrir um 4,5 milljón íbúa svæði sem einkum er þekkt fyrir ferðaþjónustu og strandbæi eins og St. Petersburg, Clearwater Beach og Sarasota. Tæplega tveggja tíma akstur er milli Orlando, sem Icelandair hefur þjónustað um árabil, og Tampa. Flugið til Tampa Bay hefst 6. september og eykst þá tíðnin inn á hina vinsælu ferðamannastaði Florida, auk þess sem Tampa flugvöllur býður upp á góða tengiflugsmöguleika.

„Þessir áfangastaðir falla vel að leiðakerfi okkar. Borgirnar opna ný stór markaðssvæði fyrir íslenska ferðaþjónustu og styrkja tengiflug okkar til og frá Evrópuborgum. Þá eru þær kærkomin valkostur fyrir Íslendinga í ferðahug“, er haft eftir Birkii Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair í tilkynningu. 

Túristi.is greindi frá tilvonandi áætlunarflugi Icelandair til Tampa í morgun og vitnaði í dagblaðið Tampa Bay Times. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK