Breska verslunarkeðjan Iceland Foods mun senda sérstaka samninganefnd hingað til lands í vikunni sem mun freista þess að ná sáttum við íslensk stjórnvöld.
Utanríkisráðuneytið greindi frá því í síðustu viku að gripið hafi verið til lagalegra aðgerða gegn keðjunni og sagði í tilkynningu að fyrirtækið hefði um árabil beitt sér gegn því að íslensk fyrirtæki gætu auðkennt sig með upprunalandi sínu við markaðssetningu á vörum sínum og þjónustu í Evrópu.
Fyrri frétt mbl.is: Ísland í mál við Iceland
Samkvæmt frétt The Guardian eru stjórnendur Iceland Foods að reyna að ná fundi með Lilju Alfreðsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, án tafar og er tilgangurinn sagður vera að leggja fram „uppbyggilegar tillögur“ sem gætu leyst málið svo að keðjan og landið getið „lifað saman í friði“.
Vitnað er í stofnanda og framkvæmdastjóra Iceland Foods, Malcolm Walker, sem segist vona að jákvæð og fljótleg niðurstaða verði í málinu. Lagaráðgjafi fyrirtækisins, Duncan Vaughan, fer fyrir samninganefndinni næstu daga en Walker verður ekki með í för.
„Við skráðum fyrirtækið okkar undir nafninu Iceland árið 1970 og höfum lifað í sátt og samlyndi með Íslandi allar götur síðan. Þau hafa ekki haft samband við okkur varðandi vörumerkjaskráninguna síðan 2012,“ segir Walker. „Við viljum ekki standa í veginum svo að Ísland geti notað þeirra eigið nafn til þess að koma vörum sínum á framfæri, svo lengi sem því er ekki ruglað saman við okkar starfsemi. Ég er viss um að það sé hægt að komast að samkomulagi.“