Bankaráð Landsbankans og Steinþór Pálsson bankastjóri hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum hjá bankanum. Steinþór hefur verið bankastjóri frá 1. júní 2010 en Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármála og staðgengill bankastjóra, hefur tekið við stjórn bankans. Staða bankastjóra verður auglýst svo fljótt sem verða má.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.
„Ég hef verið í Landsbankanum í sex og hálft viðburðaríkt ár. Gríðarlega mikið hefur áunnist á þessum árum við að endurreisa fjárhag heimila og fyrirtækja. Landsbankinn hefur tekið stakkaskiptum á þessum tíma og ég skil sáttur við mín störf. Fjárhagsstaða bankans er mjög traust og markaðshlutdeild bankans hefur vaxið. Ég kveð samstarfsfólk mitt með hlýjum hug og baráttukveðjum til framtíðar,“ er haft eftir Steinþóri.
Þá er vitnað í Helgu Björk Eiríksdóttur, formann bankaráðs, sem þakkar Steinþóri fyrir öflugt og árangursríkt starf fyrir bankann.
„Mörg brýn og krefjandi úrlausnarefni hafa verið til lykta leidd undir hans forystu og staða bankans hefur styrkst mikið á undanförnum árum. Nú bíða Landsbankans nýjar áskoranir og telur bankaráðið rétt að takast á við þær með nýjum bankastjóra. Við óskum Steinþóri velfarnaðar í framtíðinni,“ er haft eftir Helgu.
Rúm vika er síðan Ríkisendurskoðun sendi frá sér skýrsluna Eignasala Landsbankans hf. 2010-2016. Þar gagnrýnir stofnunin Landsbankann sérstaklega fyrir að hafa ekki aflað sér nægilegra upplýsinga um greiðslukortafyrirtækið Borgun, m.a. um aðild fyrirtækisins að Visa Europe Ltd. Erfitt er að meta þá fjárhæð sem Landsbankinn fór á mis við þar sem hagnaður Borgunar, alls um 6,2 milljarðar króna, varð að nokkru leyti til eftir sölu eignarhlutarins.
Er það jafnframt mat Ríkisendurskoðunar að Landsbankinn hefði þurft að setja sér skýrar reglur um sölu annarra eigna en fullnustueigna fyrr en árið 2015. Þá hefði bankinn þurft að fylgja betur þeim meginkröfum að selja mikilvægar eignir í opnu og gagnsæju söluferli eða rökstyðja ella frávik frá þeim kröfum.
Í samtali við RÚV 23. nóvember sagðist Steinþór ekki ætla að segja af sér sem bankastjóri. Sagðist hann fagna skýrslunni en að hún hefði mátt vera ítarlegri. Sagði hann að árin 2010 til 2011 hefðu verið sérstakir tímar og að menn hafi stundum metið stöðuna þannig að rétt væri að selja í lokuðu söluferli. Langoftast hafi eignir þó verið seldar í opnu söluferli.