Kortavelta Valitor jókst um 21,4% á Íslandi þegar að „Black Friday“-helgin gekk yfir nú fyrir um viku síðan. Svarti föstudagurinn, ásamt helginni allri, er orðin langstærsta viðskiptalota Valitor. Hún hefst á föstudegi og stendur fram á mánudag sem nefnist „Cyber Monday“ eða Netmánudagur.
Um 83% viðskipta Valitor um helgina voru í Evrópu, þ.e. Bretlandseyjum og Norðurlöndum og 17% hér heima. Þessi helgarviðskipti Valitor hafa aukist um 110% í heildina frá því í fyrra. Í tilkynningu Valitor segir að um er að ræða gríðarlegt færslumagn í rauntímavinnslu og mældust 87 færslur á sekúndu þegar mest var.
Vöxturinn í Evrópu nam 160% en vöxtur hér heima var 21.4% eins og fyrr segir. Stærstu vöruflokkarnir eru föt, raftæki, bækur, íþróttavörur og hvers kyns gjafavörur. Í Evrópu voru 95% viðskiptanna í gegnum netverslun.
„Það er auðvitað bæði skemmtileg og risastór áskorun að takast á við svona mikið álag á kerfi félagsins, sérstaklega að færsluhirða þennan aragrúa af vefgreiðslum en alls fóru 1,5 milljónir færslna í gegnum okkar kerfi bara á föstudeginum. Undirbúningurinn tók margar vikur og reyndi mjög á hæfni og reynslu starfsfólks okkar,“ er haft eftir Viðari Þorkelssyni, forstjóra Valitor í tilkynningunni.
Það skal tekið fram að í báðum gröfunum frá Valitor er ekki að finna nafntölur yfir sölu heldur lýsa þau hlutfallsbreytingu milli ára.