Ákvörðun Hæstaréttar um að sakfella tvo núverandi og tvo fyrrverandi starfsmenn Húsasmiðunnar á grundvelli ákæru saksóknara kemur fyrirtækinu á óvart og veldur vonbrigðum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsasmiðjunni.
Eins og fram kom á mbl.is í gær hefur Hæstiréttur dæmt sex starfsmenn byggingavöruverslanana BYKO og Húsasmiðjunnar fyrir refsivert verðsamráð í störfum sínum á árunum 2010 til 2011.
Var fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá BYKO dæmdur í 18 mánaða fangelsi og kollegi hans hjá Húsasmiðjunni í níu mánaða fangelsi. Tveir fyrrverandi vörustjórar Húsasmiðjunnar voru þá dæmdir annars vegar í níu mánaða fangelsi og hins vegar í þriggja mánaða fangelsi. Tveir voru sýknaðir.
Fyrri frétt mbl.is: Í fangelsi fyrir verðsamráð
Fyrri frétt mbl.is: BYKO segir dóminn óskiljanlegan
„Niðurstaða Hæstaréttar snýr við dómi fjölskipaðs héraðsdóms sem taldi gögn málsins sýna með óyggjandi hætti að verðsamkeppni á byggingavörumarkaðnum væri mikil og á markaðnum ríkti mikil og hörð samkeppni, en ekki verðsamráð,“ segir í tilkynningunni.
Er lögð á hersla á að þau atvik sem urðu tilefni til rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á sínum tíma áttu sér stað áður en danska byggingavörukeðjan Bygma Gruppen A/S keypti rekstur og eignir Húsasmiðjunnar af Framtakssjóði Íslands í desember 2011. Í ársbyrjun 2012 tók til starfa nýtt félag undir nafni og merkjum Húsasmiðjunnar og nýr forstjóri var ráðinn til starfa hjá Húsasmiðjunni sumarið 2013.
„Húsasmiðjan og Bygma samstæðan í heild hefur að leiðarljósi að stunda ávallt virka samkeppni. Stjórnendur og starfsmenn Húsasmiðjunnar hafa á undanförnum árum hlotið reglulega fræðslu um samkeppnismál og samkeppnisrétt frá óháðum fagaðilum,“ segir í tilkynningu.