Selja QuizUp til Bandaríkjanna

Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla.
Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla.

Plain Vanilla hefur náð samkomulagi um sölu á QuizUp leiknum til bandaríska leikjafyrirtækisins Glu Mobile. Heildarverðmæti kaupsamningsins er í kringum 7,5 milljónir dollara en er að hluta greitt með uppgjöri skulda milli fyrirtækjanna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að undanfarið hafi starfsmenn Glu og Plain Vanilla unnið hörðum höndum að yfirfærslu leiksins og hefur teymi frá Glu starfað að því verkefni í höfuðstöðvum Plain Vanilla að Laugavegi 77. Í kjölfar sölunnar munu Plain Vanilla Corp. í Bandaríkjunum og Plain Vanilla á Íslandi hætta rekstri en félögin standa skil á öllum skuldbindingum við starfsmenn sína og lánardrottna.

Tilkynnt var þann 31. ágúst síðastliðinn að Plain Vanilla hygðist loka skrifstofum sínum á Íslandi og færa QuizUp til Bandaríkjanna. Ástæðan var að hætt var við sýningu sjónvarpsútgáfu leiksins í samstarfi við NBC sjónvarpsstöðina og þar með brást rekstrargrundvöllur fyrirtækisins á Íslandi.

Fyrri frétt mbl.is: Plain Vanilla-skrifstofu á Íslandi lokað

QuizUp farsímaleikurinn nýtur enn mikilla vinsælda á heimsvísu og bætast við á bilinu 20-30 þúsund nýir notendur daglega. Frá því að QuizUp var fyrst gefinn út í nóvember árið 2013 hafa um 80 milljónir manna hlaðið niður leiknum og spilað hann.

„Þetta hefur verið ótrúlegt ævintýri. Á annað hundrað Íslendingar hafa fengið mikilvæga reynslu í gegnum störf sín hjá fyrirtækinu sem náði ótrúlega langt í þessum harða iðnaði. Einnig tókst okkur að búa til einn eftirsóttasta og skemmtilegasta vinnustað á Íslandi sem lifa mun í minningu allra þeirra sem þar störfuðu,“ er haft eftir Þorsteini B. Friðrikssyni, stofnanda Plain Vanilla í fréttatilkynningu.

„Ég er mjög þakklátur öllu starfsfólki, samstarfsaðilum og fjárfestum sem komið hafa að þessu verkefni síðastliðin fimm ár. Þó að það sé erfitt að sjá á eftir barninu okkar til Bandaríkjanna þá erum við um leið spennt fyrir því sem er framundan. Þá vona ég að Glu Mobile haldi uppi merkjum QuizUp með sóma og ég hef verið fullvissaður um að það hyggist fyrirtækið gera.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK