Ekki ástæða til að halda áfram rannsóknum

Olíuborpallur. Mynd úr safni.
Olíuborpallur. Mynd úr safni. Øyvind Hagen

Fyrirtækin Ithaca, Kolvetni og Petoro hafa gefið eftir sérleyfi á Drekasvæðinu sem var gefið út 4. janúar 2013. Orkustofnun hefur fallist á ósk þeirra um eftirgjöf sérleyfisins þar sem skilmálar leyfisins hafa verið uppfylltir og öllum gögnum skilað í samræmi við kröfur stofnunarinnar. 

Á vef Orkustofnunar kemur fram að leyfishafarnir hafi safnað 1.000 km af endurkastsgögnum á leyfissvæðinu sl. sumar í samræmi við ákvæði leyfisins. Túlkun gagnanna leiddi til þeirrar ályktunar rekstraraðilans að ekki væri ástæða til að halda áfram rannsóknum og skuldbinda sig til að takast á við rannsóknaráætlun samkvæmt öðrum áfanga leyfisins.

Þá átti Orkustofnun fund 1. desember með leyfishöfum, þar sem farið var yfir niðurstöður jarðfræðirannsóknanna. Á þeim fundi samþykktu leyfishafarnir samhljóða að leita formlega eftir heimild Orkustofnunar til að gefa sérleyfið eftir. 

Drekasvæðið.
Drekasvæðið. mbl.is/KG

„Jarðfræðirannsóknir byggðar á nýju endurkastsgögnunum benda til þess að líkur á að finna olíu og/eða gas, á afmörkuðu svæði sérleyfissvæðis sem rannsakað var, gefi ekki tilefni til að takast á við næsta áfanga rannsóknaráætlunar sérleyfisins. Niðurstöður túlkunar Ithaca Petroleum á gögnunum leiðir líkur að því að á svæði sem leyfishafarnir töldu fýsilegt, væri móðurberg kolvetna á dýpri jarðlögum en fyrstu vísbendingar gáfu til kynna,“ segir á vef stofnunarinnar.

„Orkustofnun bendir á að jarðfræðiaðstæður á leyfissvæði Ithaca Petroleum eru gjörólíkar aðstæðum á því leyfissvæðinu sem enn er rannsakað samkvæmt leyfi nr. 2014/01. CNOOC International er rekstraraðili þess svæðis og halda rannsóknir þar áfram í samræmi við rannsóknaáætlun leyfisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK