Allt verður rifið úr Debenhams

Rýmingasalan í Debenhams hefur gengið betur en gert var ráð …
Rýmingasalan í Debenhams hefur gengið betur en gert var ráð fyrir. Þar eru m.a. seldar gínur. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Töluverðar framkvæmdir þarf að gera á 4.000 fermetra rými í Smáralind áður en það mun hýsa flaggskipsverslun H&M sem á að vera opnuð í september. Framkvæmdastjóri Smáralindar, Sturla Gunnar Eðvarðsson, segir að verslunin verði sú glæsilegasta á landinu en þar verður að finna kven-, karla- og barnafatnað frá H&M.

Verslun Debenhams er nú í rýminu en henni verður lokað í síðasta lagi í lok mánaðar. Rýmingarsalan þar hefur gengið betur en áætlað var og eru líkur á því að versluninni verði lokað fyrr en gert var ráð fyrir.

Fyrri frétt mbl.is: „Marg­ir hafa gert reyf­ara­kaup hérna“

„Þá hefjast mjög viðamiklar breytingar. Allt sem er í þessu rými Debenhams verður fjarlægt,“ segir Sturla og bætir við að núverandi rúllustigar verða fjarlægðir og nýr settur á öðrum stað. Þá verður innganginum breytt töluvert og inngangi inn í verslunina á suðvesturhorni lokað.

Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar.
Sturla Gunnar Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Smáralindar. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Verður glæsilegasta verslun landsins

„Það má segja að þessi endi Smáralindar verði undir framkvæmdum allt þetta ár,“ segir Sturla. „Við skilum síðan versluninni af okkur í ákveðnu standi og þau hjá H&M setja síðan inn sínar innréttingar.“

Enn er stefnt að opnun verslunarinnar í september. Eins og fyrr segir er um flaggskipsverslun að ræða og verður hægt að fá vörur úr kven-, karla- og barnadeildum H&M.

„Þetta verður án efa glæsilegasta verslun landsins. Það er mikið lagt í þetta og þau hjá H&M eru spennt að koma til Íslands og hafa sett sitt besta fólk í þetta verkefni svo að allt gangi snurðulaust fyrir sig. En þetta er mikið ferli og tekur sinn tíma en samstarfið hefur gengið mjög vel.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK