Sala á vörulínu Ivönku Trump, dóttur Donald Trumps Bandaríkjaforseta, í stórverslanakeðjunni Nordstrom dróst saman um tæpan þriðjung á síðasta fjárhagsári. Var samdrátturinn áberandi mestur vikurnar áður en Trump var kjörinn forseti, að því er dagblaðið Wall Street Journal greinir frá.
Nordstrom tilkynnti nú í vikunni að verslanakeðjan hefði ákveðið að hætta að selja vörulínu forsetadótturinnar. Trump lýsti í kjölfarið óánægju sinni á Twitter og sagði Nordstrom koma illa fram við dóttur sína.
Vörulína Ivönku Trump er þó ekki ein um að vera tekin úr sölu, því bandarísku verslanakeðjurnar Sears og Kmart hafa tekið húsganga- og heimilislínuna Trump Home úr sölu hjá sér, til að gefa söluvænlegri hlutum meira rými að því er Reuters hefur eftir talsmanni verslananna.
Wall Street Journal vitnaði í söluupplýsingar Nordstrom sem ekki hafa verið gerðar opinberar, en sem sýna að salan á línu Ivönku Trump var 70% minni þrjár síðustu vikurnar í október í fyrra miðað við sama tíma árið áður. Bandarísku forsetakosningarnar voru haldnar 8. nóvember.
Nordstrom neitaði að veita fjölmiðlum sölutölur fyrir Trump-línuna, en hagnaður fyrirtækisins dróst saman um rúmar 20 milljónir dollara milli ára.
Forsetinn var ekki einn um að lýsa yfir stuðningi við viðskipti dóttur sinnar, því einn helsti ráðgjafi Trump í Hvíta húsinu, Kellyanne Conway, hefur verið sökuð um að brjóta siðareglur eftir að hún hvatti áhorfendur í viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina til að kaupa línu Ivönku og sagði hún þar um „ókeypis auglýsingu“ að ræða.
Repúblikaninn Jason Chaffetz, sem er formaður eftirlitsnefndar bandaríska þingsins, tilkynnti á fimmtudag að hann hefði farið þess á leit við siðanefnd þingsins að hún tæki yfirlýsingar Conway til skoðunar og mælti með því að hún væri látin sæta viðurlögum fyrir agabrot ef ástæða væri til.