Varaformaður stjórnar Samsung, Lee Jae-Yong, var handtekinn í dag grunaður um mútur og fleiri brot í fjársvikamáli tengdu spillingu í stjórnmálum Suður-Kóreu. Þrátt fyrir að vera ekki titlaður forstjóri Samsung stýrir Lee Jae-Yong Samsung en faðir hans er stjórnarformaður samsteypunnar.
Þing Suður-Kóreu samþykkti í desember að kæra forseta landsins, Park Geun-Hye, í tengslum við málið og fer forsætisráðherra landsins, Hwang Kyo-Ahn, með embættisstörf hennar á meðan rannsókn stendur yfir.
Choi Soon-Sil, uppnefnd „Raspútín Kóreu“, sem var trúnaðarvinkona forsetans, Park Geun-Hye, er sökuð um að hafa notfært sér samband þeirra til að knýja fram fjárframlög að andvirði sjö milljarða króna frá fyrirtækjum, m.a. Samsung, til stofnunar sem hún stjórnar.
Meðal þess sem Lee Jae-Yong er sakaður um er að hafa greitt Choi Soon-Sil tæplega 40 milljónir Bandaríkjadala í mútur til þess að tryggja sér pólitíska greiða.