Elon Musk stofnandi og forstjóri Tesla og SpaceX hefur stofnað nýtt fyrirtæki sem vinnur að þróun á tækni á sviði gervigreindar. Fyrirtækið nefnist Neuralink og mun þróa efni sem á að gera fólki kleift að stjórna tækjum með huganum einum.
Wall Street Journal greindi upphaflega frá þessu en Musk staðfesti þetta á Twitter í dag og sagði að vænta megi nánari upplýsinga eftir viku.
Musk hefur þó áður talað um þessa hugmynd og nefnt þessa tækni „neural lace“. Á Code ráðstefnunni í fyrra sagði hann að hugsunin væri að bæta nýju skilningarviti við mannslíkamann, einhvers konar stafrænu skilningarviti, með ígræðslu af einhverju tagi. Sagði hann að skurðaðgerð til að koma þessu fyrir ætti ekki að vera nauðsynleg heldur ætti að vera hægt að sprauta efni sem gerir þessi samskipti möguleg í æðarnar.
Meðstofnandi fyrirtækisins er Max Hodak sem hefur gert miklar rannsóknir á sviði gervigreinar.
Long Neuralink piece coming out on @waitbutwhy in about a week. Difficult to dedicate the time, but existential risk is too high not to.
— Elon Musk (@elonmusk) March 28, 2017
Musk á Code-ráðstefnunni í fyrra: