Hlutabréf í United Continental Holdings, sem á flugfélagið United Airlines, lækkuðu um 3,5% í verði þegar að Wall Street opnaði í morgun. Flugfélagið hefur verið í umræðunni í gær og í dag eftir að farþegi var dreginn frá borði þotu félagsins eftir að hafa neitað að fara frá borði.
Yfirbókað var í ferðina sem var á leið frá Chicago til Louisville á sunnudag. Enginn bauðst til þess að fara frá borði svo að koma mætti fyrir fjórum starfsmönnum flugfélagsins í farþegarýminu. Þá völdu starfsmenn flugfélagsins fjóra farþega af handahófi. En einn þessara fjögurra neitaði hins vegar að fara úr sæti sínu. Hann sagðist vera læknir og yrði að verða mættur til vinnu á sjúkrahúsi daginn eftir. Í kjölfarið komu þrír öryggisverðir um borð og drógu hann úr sæti sínu og út úr vélinni.
Málið hefur vakið gríðarlega athygli en atvikið var tekið upp á myndbönd og dreift á samfélagsmiðlum. Atvikið hefur jafnframt haft mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir United Airlines og hafa samfélagsmiðlar logað síðan að myndböndin fóru í dreifingu.
Ummæli forstjóra United Airlines, Oscar Munoz, vöktu jafnframt reiði en hann sagði m.a. að flugfélagið hafi „fylgt hefðbundnu verklagi“ og að farþeginn hafi verið „með læti og ófriðsamur“.