Forstjóri United Airlines ætlar ekki að segja af sér í kjölfar þeirrar neikvæðu athygli sem félagið hefur hlotið eftir að myndbandi var dreift á samfélagsmiðlum sem sýnir lögreglu draga öskrandi mann úr farþegaþotu félagsins.
Oscar Munoz, forstjóri United Airlines, segist nú skammast sín vegna málsins og hefur heitið því að eitthvað í líkingu við það sem gerðist um borð í þotu félagsins á sunnudaginn muni aldrei endurtaka sig.
Sagði hann jafnframt að farþeginn, David Dao, ætti „svo sannarlega skilið að fá afsökunarbeiðni“.
Munoz hafði hins vegar áður sagt í tölvupósti til starfsmanna sinna að þeir hefðu farið rétt að og fylgt verklagsreglum. Þá sagði hann að Dao, sem er 69 ára læknir, hafi látið „dólgslega“ um borð.
Atvikið hefur vakið gríðarlega athygli. Vél United Airlines átti að fljúga frá Chicago til Louisville í Kentucky á sunnudag. Þegar allir farþegar voru komnir um borð var tilkynnt að vélin væri yfirbókuð og óskað var eftir sjálfboðaliðum til að fresta flugi sínu og fá fyrir það bætur. Það vildi svo til að enginn gaf sig fram. Völdu þá starfsmenn fjóra farþega af handahófi, að því er þeir segja, og báðu þá að fara út. David Dao sagðist ekki vilja fara. Hann væri læknir og ætti að mæta til vinnu á sjúkrahúsið daginn eftir.
Þá kölluðu starfsmenn flugfélagsins til öryggisverði af flugvellinum og létu draga hann með valdi frá borði.
Munoz mætti í morgunþáttinn Good Morning America í morgun til þess að ræða atvikið. „Nei ég var ráðinn til þess að gera United betra og ég hef verið að gera það og held áfram að gera það,“ sagði hann, spurður hvort hann ætlaði að segja af sér.
„En skömmin var áþreifanleg,“ sagði hann. „Þetta getur aldrei og mun aldrei gerast aftur í flugi United Airlines.“
Spurður hvort það hafi að einhverju leyti verið Dao að kenna hvað gerðist um borð sagði Munoz svo ekki vera. „Nei hann getur ekki borið ábyrgð. Hann var farþegi sem hafði greitt fyrir ferðina, sitjandi í okkar sæti í okkar flugvél og enginn ætti að þola svona meðferð. Punktur,“ sagði forstjórinn.