Félagið Credit One ehf., sem áður hét Kredia, og séhæfir sig í smálánum var úrskurðað gjaldþrota í héraðsdómi Norðurlands eystra 12. apríl. Félagið tengist Smálánum ehf. nánum böndum en það var úrskurðað gjaldþrota síðasta haust. Bæði smálánafyrirtækin eru ennþá starfandi.
Bæði félögin hafa ítrekað verið í umræðunni og hafa þau verið sektuð vegna starfsemi sinnar. Árið 2014 höfðaði Kredia ásamt Smálánum mál á hendur Neytendastofu. Fyrirtækin vildu láta ógilda ákvörðun áfrýjunarnefndar neytendamála sem snýr að útreikningi á heildarlántökukostnaði. Neytendastofa var sýknuð af kröfum fyrirtækjanna.
Þá tók Neytendastofa ákvarðanir í maí í fyrra um að sömu fyrirtæki, Kredía og Smálán, hefðu brotið gegn lögum um neytendalán við útreikning árlegrar hlutfallstölu kostnaðar og upplýsingagjöf til neytenda í tengslum við lán sem félögin veita neytendum.
Félögin kærðu ákvarðanirnar til áfrýjunarnefndar neytendamála og voru þær flestar staðfestar af nefndinni.
Nafni Kredia var breytt í Credit One ehf. í febrúar sl. samkvæmt gögnum frá Fyrirtækjaskrá en skráður eigandi þess er slóvakinn Mario Megela sem keypti félagið árið 2013. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi síðan en þá nam hagnaður þess 59 milljónum króna.
Megela keypti einnig Smálán ehf. á sama tíma en við gjaldþrotaskiptin í haust var það skráð í 100% eigu DCG ehf. sem er í eigu Leifs Alexanders Haraldssonar.
Fyrirtækið eru með lögheimili á sama stað á Siglufirði og er Megela skráður stjórnarmaður og framkvæmdastjóri í báðum félögum