Framkvæmdastjóri Íslandshótela segir að fyrirtækið muni fresta hóteluppbyggingu í höfuðborginni komi til hækkana á virðisaukaskatti á ferðaþjónustuna og hótelstjóri Reykjavík Marina telur að með tvöföldun virðisaukaskatts muni reksturinn þyngjast.
Þetta kemur fram í frétt RÚV. Íslandshótel reka 18 hótel um allt land og í samtali við RÚV segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, félagið muni þurfa að endurskoða eða fresta framkvæmdum fyrirtækisins á Blómavalsreitnum, við stækkun Grand Hótels í Reykjavík, opnun á nýju hóteli í Lækjargötu og hótel í Sjallanum á Akureyri. Allar þessar framkvæmdir eiga að hefjast á þessu ári.
Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar verður virðisaukaskattur á ferðaþjónustuna hækkaður í 24% 1. júlí.
Þá athugaði Túristi hvort fyrirhugaðar skattabreytingar myndu hafa einhver áhrif á áætlanir fyrirtækisins við Hörpu en talsmenn hótelsins vildu ekki tjá sig um málið.