Ingólfur Bender til SI

Ingólfur hefur frá árinu 2000 starfað sem forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka …
Ingólfur hefur frá árinu 2000 starfað sem forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka og sem aðalhagfræðingur bankans.

Ingólfur Bender hefur verið ráðinn hagfræðingur Samtaka iðnaðarins og hefur hann þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI.

Ingólfur hefur frá árinu 2000 starfað sem forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka og sem aðalhagfræðingur bankans. Fyrir þann tíma starfaði hann sem hagfræðingur Samtaka iðnaðarins, sem kennari við Háskóla Íslands, sem hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu og á Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.

Ingólfur er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og BS-gráðu í hagfræði frá sama skóla. 

Í tilkynningu er vitnað í Jón Bjarna Gunnarsson, framkvæmdastjóra SI, sem segir það mikinn feng fyrir samtökin að fá Ingólf til starfa. „Við þekkjum vel til Ingólfs frá fyrri árum þegar hann var hagfræðingur samtakanna um árabil. Ingólfur hefur mikla þekkingu á íslensku efnahagslífi og er vel að sér um þær áskoranir sem atvinnulífið stendur frammi fyrir. Það er því verðmætt fyrir Samtök iðnaðarins og aðildarfyrirtæki samtakanna að fá svo reyndan hagfræðing til liðs við sig.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK