„Þetta er mjög ánægjulegt. Þeir fylgja þeirri þróun gengis sem á sér stað á heimsmarkaði og neytendur njóta góðs af því,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, um lækkun Costco á eldsneyti um þrjár krónur. Í Costco kostar nú lítrinn af bensíni 166,9 krónur og lítrinn af dísilolíu 158,9 krónur.
„Við erum þegar farin að sjá að þetta hefur áhrif á aðra eldsneytissala. Ég geri ráð fyrir að áhrifin verði meiri,“ segir Runólfur. Hann segir áhrifin, sem eru þegar farin að greinast, stangast á við fyrstu viðbrögð íslensku olíufélaganna um að þeir séu ekki í beinni samkeppni við Costco.
„Við höfum ákveðnar heimildir fyrir því að verslunin Costco sé þegar farin að taka verulegan hluta af eldsneytissölu á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að vera bara með eina stöð,“ segir Runólfur og bætir við að olíufyrirtækin sem eru á hlutabréfamarkaði verði að bregðast við því.
Þegar Costco hefur verið á markaði hér á landi í um tvo mánuði verður unnt að greina hlutdeild verslunarinnar á olíumarkaði.