Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur fest kaup á Kú mjólkurbúi en með kaupunum styrkist staða Kú á mjólkurmarkaði til muna samkvæmt fréttatilkynningu.
„Kú hefur verið ötull frumkvöðull frá stofnun og barist af einurð og afli gegn fákeppni á mjólkurmarkaði. Með kaupum Ölgerðarinnar eykst sá slagkraftur án þess þó að að breyta frumkvöðlahugsjón fyrirtækisins þar sem hagur neytenda og framsýni ræður ríkjum,“ er haft eftir Októ Einarssyni, stjórnarformanni Ölgerðarinnar.
Kú mjólkurbú var stofnað árið 2009 og hófst framleiðsla ári síðar.
„Við höfum lent í ýmsu og það hefur ekki alltaf verið auðvelt að berjast á þeim fákeppnismarkaði sem ríkt hefur. Stuðningur Ölgerðarinnar styrkir okkur í þeirri baráttu sem framundan er og hleypir nýjum krafti í okkur,“ er haft eftir Ólafi Magnússyni, stofnanda Kú sem mun starfa áfram með fyrirtækinu en í tilkynningu segir að framundan sé fjöldi nýjunga frá Kú mjólkurbúi sem kynntar verða á næstu mánuðum.
„Það eru spennandi tímar framundan og ég hlakka til að sjá öflugri Kú takast á við þá ójöfnu samkeppni sem ríkt hefur. Neytendur verða sem fyrr í fyrsta sæti hjá Kú mjólkurbúi,“ er haft eftir Guðna Þór Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra.