Ísland er í 83. sæti af 128 löndum þegar kemur að aðgengi að húsnæði á viðráðanlegu verði, samkvæmt nýútkominni skýrslu sem gerir grein fyrir vísitölu félagslegra framfara og tekin var saman af stofnuninni Social Progress Imperative (SPI).
„Þetta er auðvitað mjög lélegt miðað við hvað við erum með rosalega gott samfélag. Við þurfum að leggja aðeins meira á okkur til að bæta þetta og einbeita okkur að lausnum í þá veru. Það eru engu að síður margar hliðar á þessu máli og margir sem eru að reyna að finna einhverjar lausnir,“ segir Rósbjörg Jónsdóttir, einn fulltrúa Íslands í SPI-teyminu. Hún segir þessar niðurstöður þó alls ekki hafa komið sér á óvart, miðað við ástandið á húsnæðis- og leigumarkaði hér á landi.
SPI er sjálfstæð stofnun, starfandi í Washington, en er að ræða samstarfsverkefni ólíkra aðila sem þróað hafa áðurnefndan mælikvarða. Forsætisráðuneytið, Arion banki og Deloitte hafa stutt við verkefni í tengslum við mælikvarðann hér á landi.
Vísitalan mælir uppbyggingu samfélagsins, hvernig fólkinu í landinu líður og hvaða innviðir eru eru staðar, byggða á þremur stoðum; grunnþörfum einstaklingsins, undirstöðum lífsgæða og tækifærum fólks. Ísland er borið saman við 15 þjóðir sem hafa sambærilega verga landsframleiðslu á hvern íbúa hvers lands. 83. sæti setur okkur því töluvert neðar en samanburðarþjóðirnar í þessum efnum.