Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag frávísunarkröfu Borgunar vegna málsóknar Landsbankans gegn fyrirtækinu.
Í desember greindi Landsbankinn frá því að hann hefði stefnt Borgun hf., forstjóra Borgunar hf., BPS ehf. og Eignarhaldsfélaginu Borgun slf., en málið er höfðað til viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefndu.
Hinir stefndu kröfðust þess að málinu yrði vísað frá en hérðasdómur taldi rétt að málið hlyti efnislega meðferð.
Í tilkynningu bankans frá því í desember kemur fram að það sé mat Landsbankans að hann hafi orðið af söluhagnaði við sölu á 31,2% hlut sínum í Borgun hf. árið 2014.
„Bankinn fékk ekki upplýsingar sem stefndu bjuggu yfir um að Borgun hf. ætti hlut í Visa Europe Ltd. og réttindi sem fylgdu hlutnum, þ. á m. mögulega hlutdeild í söluhagnaði Visa Europe Ltd. við nýtingu söluréttar í valréttarsamningi Visa Inc. og Visa Europe Ltd,“ sagði í tilkynningu Landsbankans í desember.