11% fleiri farþegar en í fyrra

Eftirspurn bókana með skömmum fyrirvara er sögð hafa verið minni …
Eftirspurn bókana með skömmum fyrirvara er sögð hafa verið minni en áætlað var. mbl.is/Árni Sæberg

Icelanda­ir flutti um 488 þúsund farþega í júní og voru þeir 11% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Sæta­nýt­ing jókst þá á sama tíma frá 83,7% í 85,4%, þrátt fyr­ir að fram­boð sæta hafi einnig verið aukið um 11%.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Icelanda­ir Group. Seg­ir þar einnig að fjöldi seldra gistinátta á hót­el­um fé­lags­ins hafi auk­ist um 5% sam­an borið við júní í fyrra. Her­bergja­nýt­ing hafi hins veg­ar minnkað, hafi nú verið 80,0% miðað við 84,5% á síðasta ári.

Af­bók­un­um hópa fjölgað

Eft­ir­spurn bók­ana með skömm­um fyr­ir­vara hafi þá verið minni en áætlað var ásamt því að meira hafi verið um af­bók­an­ir hópa en á sama tíma í fyrra.

Farþegar flug­fé­lags­ins Air Ice­land Conn­ect, sem áður nefnd­ist Flug­fé­lag Íslands, voru 33 þúsund í júní sam­kvæmt til­kynn­ing­unni og fjölgaði um 9% á milli ára, en fram­boð fé­lags­ins var aukið um 11% sam­an­borið við júní árið 2015. Enn frem­ur hafi sæta­nýt­ing numið 66,8% og auk­ist um 0,3 pró­sentu­stig á milli ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK