Gert er ráð fyrir því að verslun H&M í Kringlunni verði opnuð seinni hluta septembermánaðar. Verslunin verður í 2.600 fermetra rými á annarri hæð Kringlunnar þar sem Hagkaup var áður. Í samtali við mbl.is segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, að framkvæmdir við rýmið hafi gengið vel en Kringlan afhenti H&M það í byrjun júlí.
Það er mikið í gangi í Kringlunni sem fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Leikfangaverslunin ToysRus verður opnuð þar í næsta mánuði og verður hún fjórða ToysRus-verslunin hér á landi. Sigurjón segir að verslunin verði opnuð 21. september í rýminu sem áður hýsti Next. Rýmið er eitt það stærsta í Kringlunni eða um 2.000 fermetrar á tveimur hæðum.
Þá verður Nespresso-verslun opnuð 1. desember í hluta rýmisins sem hýsir nú Topshop en þeirri verslun verður lokað í lok mánaðar og á næstu vikum mun kökuverslunin 17 sortir verða opnuð í rými á fyrstu hæð Kringlunnar við Útilíf. Síðan hefur Hagkaup á neðri hæð Kringlunnar verið lokað tímabundið á meðan uppsetning á nýrri verslun fer fram. Hún verður opnuð í október en markmiðið er að breyta útlitinu og bæta nýtinguna með sama móti og í Smáralind.
Í samtali við mbl.is fyrr í mánuðinum sagði Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, að ákveðið hefði verið að ráðast í framkvæmdir þegar tækifæri gafst en verslunin var síðast endurnýjuð að hluta árið 1999.