„Við ætlum að halda áfram að byggja upp vörumerki Dunkin' og markmiðið er að opna fleiri staði inni í og við verslanir 10-11,“ segir Sigurður Karlsson, framkvæmdastjóri Dunkin’ Donuts á Íslandi.
Forsvarsmenn Dunkin' Donuts á Íslandi hafa tekið ákvörðun um að loka staðnum á Laugavegi frá og með deginum í dag. Var ástæðan sú að staðurinn var rekinn með tapi, einkum vegna hás húsnæðiskostnaðar.
„Við vildum láta reyna á að opna í stóru húsnæði,“ segir Sigurður. „Fjöldi viðskiptavina var í takti við væntingar, og jafnvel aðeins meiri, en það er erfitt að reka kaffihús á 350 fermetrum. Sala á hvern viðskiptavin var of lág til að staðurinn stæði undir sér.“
Þegar fyrsti Dunkin' Donuts var opnaður hér á landi stefndi fyrirtækið að því að opna í heildina 16 staði á fimm árum. Sigurður segist ekki geta fullyrt hversu margir þeir verði á endanum, en ítrekar að fleiri staðir verði opnaðir. Þá sagði hann of snemmt að segja til um hvar og hvenær næsti staður yrði opnaður.