Allar kröfur í þrotabú félagsins sem var stofnað fyrir framleiðslu á kvikmyndinni Djúpið hafa verið afturkallaðar en þær námu tæpum 115 milljónum íslenskra króna. Félagið hefur þannig komist hjá gjaldþroti.
Félagið Andakt var stofnað árið 2010 til þess að halda utan um rekstur og framleiðslu á Djúpinu. Af þeim 115 milljónum sem krafist var má rekja 10 milljónir til leigu á krönum sem notaðir voru við tökur í Helguvík á Reykjanesi en í maí 2015 var Andakt dæmt til að greiða kranafyrirtækinu ÁB Lyfting rúmar fjórar milljónir krónur vegna leigunnar.
Hin krafan, um 105 milljónir króna, er frá móðurfélaginu Sögn sem er 88% í eigu Baltasars Kormáks Baltasarssonar, sem framleiddi og leikstýrði myndinni.
Djúpið var fjórða vinsælasta kvikmyndin í kvikmyndahúsum á Íslandi árið 2012. Kvikmyndin fjallar um það þegar Guðlaugur Friðþórsson synti sex kílómetra í land eftir að báturinn Hellisey fórst seint í mars 1984.