Breski vogunarsjóðurinn Lansdowne Partnes hefur keypt 6,31% hlut í Vátryggingafélagi Íslands og á nú sjóðurinn í að minnsta kosti fjórum íslenskum félögum í Kauphöllinni.
Kauphöllin sendir út tilkynningu þegar eignarhlutur í hlutafélagi í Kauphöllinni fer yfir 5% þröskuldinn. Í tilkynningunni kemur fram að Lansdowne partners hafi í gær keypt 140.399.924 hluti í VÍS, eða 6,31%.
Markaðsvirði VÍS stendur í tæpum 28,8 milljörðum króna og nemur hlutur Lansdowne því 1,75 milljörðum króna.
Í úttekt mbl.is í vikunni kom fram að erlend fjárfestingarfyrirtæki ættu að minnsta kosti 41 milljarð króna í Kauphöll Íslands en fyrir tveimur árum stóð upphæðin í rúmum 15 milljörðum. Innflæðið á íslenska hlutabréfamarkaðinn síðustu tvö ár nemur því 26 milljörðum, sem jafngilda næstum því virði alls hlutafjár í N1.
Lansdowne á fyrir í þremur félögum; N1, Fjarskiptum og Símanum. Sjóðurinn á hlutfallslega mest í Fjarskiptum, rúm 7,5%. Hlutur þess í N1 nemur tæpum 5,8% en í Símanum á það tæp 1,9%. Þegar allt er tekið saman á Lansdowne rúma 5,35 milljarða af skráðum íslenskum hlutabréfum.