Alþjóðlegir aðilar í kísiliðnaði hafa sett sig í samband við Arion banka vegna United Silicon og lýst yfir áhuga á að skoða aðkomu að starfsemi verksmiðjunnar. Þá skoða kröfuhafar einnig aðkomu að málum.
Þetta segir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs hjá Arion banka, í svari við fyrirspurn mbl.is.
„Annars vegar eru það kröfuhafar félagsins sem eru að skoða mögulega aðkomu að málum,“ segir Haraldur Guðni. „Hins vegar hafa alþjóðlegir aðilar í þessum iðnaði sett sig í samband við bankann og félagið og lýst yfir áhuga á að skoða aðkomu að starfsemi verksmiðjunnar.“
Haraldur Guðni segir ekki tímabært að upplýsa um hverja sé að ræða, þar sem þreifingar séu enn á frumstigi. Þá nefnir hann að stundum gleymist í umræðu um málefni verksmiðjunnar að eftirspurn eftir kísilmálmi í heiminum fari vaxandi og heimsmarkaðsverð sé gott.
Í september veitti Héraðsdómur Reykjaness United Silicon greiðslustöðvun í þrjá mánuði, eða til 4. desember. Enn er unnið að tillögum um endurbætur á kísilveri United Silicon í Helguvík til að draga úr mengun