Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbon Recycling International (CRI) áformar að auka hlutafé fyrirtækisins um rúmlega 1,5 milljarð á næsta ári til þess að fjárfesta beint í uppbyggingu verksmiðja.
„Bygging og rekstur verksmiðja sem nýta tæknilausn okkar er arðbær miðað við núverandi lagaumhverfi og regluverk,“ segir Margrét O. Ásgeirsdóttir, fjármálastjóri CRI í samtali við mbl.is.
„Opinber stefna stjórnvalda á okkar markaðssvæðum felur í sér að vænta megi enn frekari arðbærni, hvort sem aðgerðir komi til með að vera í formi hvata fyrir umhverfisvæna framleiðslu eða kvaða á þá sem menga.“
Frá byggingu verksmiðju CRI í Svartsengi árið 2012 hefur fyrirtækið framleitt grænt metanól undir vöruheitinu Vulcanol. Ferlið umbreytir koltvísýringi, sem sleppur út vegna virkjunar jarðvarma í Svartsengi, í metanól sem hægt er að nota sem kolefnishlutlaust eldsneyti eða hráefni í umhverfivænni neytendavörur.
CRI var stofnað árið 2006 og samanstóð þá einungis af nokkrum starfsmönnum á rannsóknarstofu. Nú vinna 40 manns hjá fyrirtækinu, þá helst á sviði efna- og verkfræði.
Nýlega var tilkynnt um áform CRI um að reisa verksmiðju í Kína sem verður um tólf sinnum afkastameiri en verksmiðjan á Íslandi. Þar hefur verið komið á fót dótturfyrirtæki og rammasamningar um áframhaldandi þróun verkefna liggja fyrir.
Þá var CRI á nýlegum lista Deloitte yfir 500 hraðast vaxandi tæknifyrirtæki Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku en velta þess hefur vaxið um 440% undanfarin fjögur ár.