Heimild United Silicon til greiðslustöðvunar er fallin niður og mun stjórn félagsins skila inn gjaldþrotabeiðni fyrir kl. 16 í dag. Málið átti að vera tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness kl. 14 í dag en ekkert varð úr þinghaldi.
Í úrskurði Umhverfisstofnunar sem tilkynnt var um í gær kom fram að United Silicon fengi ekki heimild til að hefja framleiðslu á ný fyrr en lokið væri við nær allar þær úrbætur sem tilteknar eru í mati norska ráðgjafafyrirtækisins Multiconsult sem rannsakað hefur tækjabúnað fyrirtækisins.
United Silicon fékk í lok ágúst heimild til greiðslustöðvunar til 4. desember svo að unnt væri að rétta reksturinn af. Var heimildin síðan framlengd til 22. janúar. Samkvæmt norskum sérfræðingum sem unnu úttekt á verksmiðju United Silicon í Helguvík kostar 25 milljónir evra, 3,1 milljarð íslenskra króna, að klára verksmiðjuna og koma mengunarvörnum í lag.
Greint var frá því í lok nóvember að alþjóðlegir aðilar í kísiliðnaði hefðu sett sig í samband við Arion banka, stærsta hluthafa United Silicon, og lýst yfir áhuga aðkomu að starfsemi verksmiðjunnar. Stuttur áður hafði verið greint frá því að kostnaður bankans vegna United Silicon hefði numið 600 milljónum króna frá því að félagið fékk heimild til greiðslustöðvunar.
Uppfært:
United Silicon hefur sent frá sér tilkynningu vegna gjaldþrotabeiðnarinnar.
Stjórn United Silicon hf. hefur farið fram á gjaldþrotaskipti félagsins og beiðni hefur verið send til Héraðsdóms Reykjaness. Útséð þykir að nauðasamningar náist og því ekki forsendur fyrir beiðni um frekari framlengingu á greiðslustöðvun. Ákvörðunin var tekin eftir að ljóst varð að Umhverfisstofnun gerði kröfu um rekstur hæfist ekki á ný í verksmiðjunni fyrr en eftir viðamiklar framkvæmdir sem gætu tekið vel á annað ár.
Um skeið hefur verið ljóst að staða félagsins er þröng og afar erfið. Félagið fékk fyrst heimild til greiðslustöðvunar í ágúst 2017. Rekstur verksmiðju félagsins var skömmu síðar, eða þann 1. september, stöðvaður af Umhverfisstofnun. Heimild félagsins til greiðslustöðvunar var þann 4. september framlengd til 4. desember og þann dag til dagsins í dag.
Arion banki hefur lagt félaginu til fjármagn á greiðslustöðvunartímabilinu og kostað rannsóknir og greiningar á stöðunni. Verkefni stjórnar á greiðslustöðvunartímabilinu var að reyna að ná nauðasamningum og fá nýja fjárfesta að félaginu. Forsenda þess var að fá betri upplýsingar um stöðu félagsins. Þær úttektir sem unnar voru leiddu meðal annars í ljós mikla óreiðu og upp kom rökstuddur grunur um fjárdrátt stofnanda félagsins. Hann hefur verið kærður til embættis héraðssaksóknara. Einnig voru framkvæmdar ítarlega úttektir á búnaði verksmiðjunnar.
Í skýrslu úttektaraðila kom fram að grunnhönnun ofnsins sjálfs væri góð en augljóst sé að ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi orsakað tíðar bilanir og skapað erfiðleika við framleiðsluna. Mat sérfræðinganna sýndi að um 25 milljónir evra þyrfti til að verksmiðjan teldist fullkláruð.
Þegar félög fara í gjaldþrot þá tekur við ferli sem er í höndum skiptastjóra sem skipaður er af héraðsdómara.