Icelandair og flugmenn semja

Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna undirrituðu kjarasamning í dag
Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna undirrituðu kjarasamning í dag mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Icelandair ehf. og FÍA hafa undirritað kjarasamning sem gildir til 31. desember 2019 að því er greint var frá nú í kvöld. Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FÍA.

„Við samningagerðina núna var beitt nýjum vinnubrögðum af hálfu beggja aðila. Markmiðið var að tryggja flugmönnum félagsins samkeppnishæf kjör í alþjóðlegu samhengi og jafnframt styrkja samkeppnishæfni félagsins,“ er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni forstjóra Icelandair í fréttatilkynningu frá flugfélaginu.

Jákvæð skref séu stigin með samningnum, en ekki sé síður mikilvægt að samningsaðilar séu sammála um að halda áfram vinnu á sömu nótum í framhaldi af undirritun samninga.“

Þá er haft eftir Örnólfi Jónssyni, formanni FÍA, að ánægjulegt sé að með þessum kjarasamningi sé unnið að sameiginlegum hagsmunum Icelandair og FÍA. „Þannig má segja að kveðið hafi við nýjan tón sem  markar nýtt upphaf að sameiginlegri vegferð FÍA og Icelandair,“ sagði Örnólfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK