Um áramótin var Íslandsbanki í tveimur tilfellum með það sem flokkast undir stórar áhættuskuldbindingar til einstakra fyrirtækja eða tengdra viðskiptamanna. Skilgreining á því eru lánveitingar sem eru stærri en 10% af eiginfjárgrunni bankans. Í öðru tilfellinu er um að ræða 11% og í hinu um 10% af eiginfjárgrunninum. Nema útlánin 18,7-20,6 milljörðum hvort.
Þetta kemur fram í fjárfestakynningu bankans, en í gær var ársreikningur bankans birtur. Í Ársreikningi Arion banka, sem einnig var birtur í gær, kemur fram að bankinn sé ekki með nein útlán sem falli undir þessa skilgreiningu. Ársreikningur Landsbankans verður birtur síðar í dag.
Útlánin eru þó vel innan bæði innri og ytri viðmiða, en samkvæmt reglum um áhættuskuldbindingar hjá fjármálafyrirtækjum geta þær orðið allt að 25% af eiginfjárgrunni fjármálafyrirtækis. Samkvæmt ársreikningi Íslandsbanka voru einnig tvær stórar áhættuskuldbindingar í fyrra, en þá voru þær 12 og 13% af eiginfjárgrunni bankans.
Í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is vísar Íslandsbanki til þess að ekki séu veittar upplýsingar um nöfn á einstökum viðskiptavinum, en að um innlend fyrirtæki í góðum rekstri sé að ræða.
Eiginfjárgrunnur Íslandsbanka er 187 milljarðar og hjá Arion banka 184 milljarðar.