Áhugi landsmanna á rafknúnum bílum hefur aldrei mælst meiri en núna, en 42% þeirra sem hyggjast kaupa sér nýjan bíl innan næstu þriggja ára vildu helst að bíllinn væri knúinn rafmagni sem aðalorkugjafa. Fyrir þremur árum var hlutfallið 20%.
Áhugi á dísilbílum hefur hins vegar minnkað mikið og fallið úr 47% niður í 28% frá því í fyrra. Áhugi á bensínbílum er nokkuð stöðugur, en 28% þeirra sem hugðust kaupa bíl á næstu árum vildu slíkan bíl. Þetta kemur fram í bílakaupakönnun MMR.
Könnunin var framkvæmd dagana 9. til 17. janúar 2018 og var heildarfjöldi svarenda 1.594 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Talsverður munur er á áhuga fólks eftir stjórnmálaskoðunum. Þannig vildu yfir 60% stuðningsmanna Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna kjósa rafmagn sem aðalorkugjafa, en aðeins 15% þeirra sem styðja Flokk fólksins.
Áhugi á rafmagnsbílum jókst eftir því sem heimilistekjur fólks eru hærri, en meðal þeirra sem eru með heimilistekjur undir 400 þúsund krónum var áhuginn mestur á bensínbílum, eða 40%.
Mikilvægt er að taka fram að allar niðurstöður hafa einhver vikmörk sem miðað við 1.000 svarendur geta verið allt að +/-3,1%.
Niðurstöður könnunarinnar á vefsíðu MMR.