Fyrsti bitcoin-hraðbankinn á Íslandi verður kynntur til sögunnar á morgun á hótelinu Hlemmur Square sem stendur við hlið Hlemms.
„Mér fannst þetta áhugaverð hugmynd vegna þess að það getur verið erfitt að skipta krónunni í annan gjaldmiðil erlendis og í stað þess að fara í bankann geta hótelgestirnir skipt krónum í bitcoin áður en þeir fara úr landi,“ segir Klaus Ortlieb, einn eigenda Hlemmur Square, en hann tekur fram að hver sem er geti notað hraðbankann.
Klaus Ortlieb hefur unnið í hótelbransanum í meira en þrjátíu ár. Meðal þeirra hótela sem hann hefur sett á fót og rekið eru meðal annars hin víðfrægu Claridge's í London, Cooper Square, The Mercer, Gotham hotels og fleiri í New York og Hotel Modern í New Orleans.
Að sögn Klaus virkar hraðbankinn þannig að með því að setja reiðufé í hraðbankann er hægt að kaupa bitcoin sem er síðan fært inn á bitcoin-reikning viðkomandi. Það þarf sem sagt að eiga sérstakan bitcoin-reikning, eða bitcoin-veski eins og það er oft nefnt, áður en hægt er að nota hraðbankann.
Hraðbankinn er tengdur markaðssvæði fyrir bitcoin og tekur fyrirtækið sem sér um hann þóknun á bilinu 3-5%. Auk bitcoin er hægt að kaupa Zcash, Ethereum, Litecoin and Bitcoin Cash. „Við erum með tæknivædda gesti á Hlemmur Square sem munu hafa mikinn áhuga á þessu og auk þess er vaxandi áhugi á bitcoin.“
Spurður hvort að hraðbankaþjónusta sem þessi sé traustverðug segir Klaus að starfsmenn hann hafi þegar prófað tæknina. „Þeir settu inn reiðufé og sáu eftir örskamma stund að það var búið að færa bitcoin inn á reikninginn þeirra.“
Klaus var einnig spurður hvert viðskiptalíkanið í kringum hraðbankann væri og sagðist hann sjálfur ekki græða á honum. „Ég fæ ekki neinar þóknanir vegna þess að ég er að gera þetta til þess að gefa eitthvað til baka til samfélagsins.“
Hlemmur Square stendur fyrir sérstökum kynningarviðburði á morgun milli kl 19-21 þar sem hraðbankinn verður kynntur gestum hótelsins og öllum áhugasömum.