Guðmundur framkvæmdastjóri Truenorth

Guðmundur Arason framkvæmdastjóri Truenorth.
Guðmundur Arason framkvæmdastjóri Truenorth. Ljósmynd/Aðsend

Guðmundur Arason hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóra Truenorth. Tekur hann við starfinu af Helgu Margréti Reykdal, sem sinnt hefur starfi framkvæmdarstjóra frá stofnun True North árið 2003.

Kvikmyndafyrirtækið Truenorth hefur sérhæft sig í þjónustu við erlend stórfyrirtæki í greininni og hefur vaxið mikið frá stofnun. „Tímapunkturinn er núna til að stokka upp í rekstrinum og einbeita sér að frekari útrás á erlenda markaði ásamt því að byggja enn frekar undir stoðir félagsins hér heima,“ er haft eftir Leifi B. Dagfinnssyni stjórnarformanni True North í fréttatilkynningu. 

Fyrirtækið hefur á undanförnum árum m.a. unnið við gerð mynda á borð við Star Wars, Fast and the Furious og Prometheus og stofnaði á síðasta ári útibú útibúi í Noregi þar sem nú þegar hafa verið teknar upp nokkrar stórmyndir og sjónvarpsþættir fyrir bandarísk kvikmyndaver.  

Nú síðast stofnaði félagið Discover True North sem einbeitir sér að þjónustu við efnameiri ferðamenn sem koma til landsins.

Guðmundur hefur starfað með hléum hjá Securitas hf. árinu 1992, sem framkvæmdastjóri og síðan sem forstjóri. Hann hefur leitt skipulagsbreytingar og stefnumótun í ýmsum fyrirtækjum á íslandi og erlendis síðustu ár með stjórnarmennsku og ráðgjöf.

Guðmundur hefur setið í stjórn Neyðarlínunnar, Íslenska Gámafélagsins, Arctic Track, Servio og fleiri félaga á síðustu árum.

Guðmundur er giftur Svanhildi Gestsdóttur flugfreyju og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK