HB Grandi hagnaðist um 3 milljarða króna á árinu 2017 samanborið við 3,5 milljarða árið á undan.
Tekjur fyrirtækisins náum 26,1 milljarði króna og EBITDA nam 4,3 milljörðum króna. Eignar fyrirtækisins í árslok síðasta árs voru samtals 62,1 milljarður króna en skuldir 30 milljarðar.
HB Grandi hf. gerði út 8 fiskiskip í árslok. Félagið hefur nú fengið alla þrjá ísfisktogarana afhenta, en Engey var tilbúin til veiða um mitt ár, Akurey í febrúar 2018 og unnið er að því að koma fyrir vinnslu og lestarbúnaði í Viðey.
Árið 2017 var afli skipa félagsins 44 þúsund tonn af botnfiski og 109 þúsund tonn af uppsjávarfiski.
Í tilkynningu um ársuppgjörið segir að verkfall sjómanna hafi setti verulegan svip á rekstur félagsins í upphafi árs en það stóð yfir frá miðjum desember 2016 til 20. febrúar 2017.
Í maí var tekin ákvörðun um að leggja af botnfiskvinnslu félagsins á Akranesi. Botnfiskvinnsla á Akranesi sameinaðist botnfiskvinnslu félagsins í Reykjavík þann 1. september 2017.
Þann 2. júní 2017 var skrifað undir samning vegna smíði á 81,30 metra löngum og 17,00 metra breiðum frystitogara við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armon Gijon. Afhending togarans er áætluð um mitt ár 2019.
Félagið seldi Þerney RE-1 á árinu og var hún afhent nýjum eigendum í desember 2017. Við söluna fækkaði skipum félagsins í rekstri um eitt.
Í árslok keypti félagið 33% eignarhlut í fiskþurrkunarfyrirtækinu Laugafiski ehf. (áður Háteigur ehf.)