Fimmtán sagt upp hjá Gray Line

mbl.is/Kristinn

Gray Line á Íslandi hefur ákveðið að segja upp 15 starfsmönnum fyrir næstu mánaðamót vegna samdráttar í verkefnum, þar sem ákveðið hefur verið að hætta með áætlunarferðir í Bláa Lónið.

Í fréttatilkynningu frá Gray Line segir að um sé að ræða um 5% af starfsmannafjöldanum, þar af bílstjóra og starfsfólk í farþegaafgreiðslu. Þetta er í fyrsta skipti í 30 ára sögu félagsins sem bregðast þarf við samdrætti með uppsögnum.

Tekið er fram að áætlunarferðir Gray Line í Bláa lónið hafi verið ein af meginstoðum afþreyingarferða fyrirtækisins í 20 ár. Gray Line hafi kynnt Bláa lónið í markaðsstarfi sínu um allan heim og flutt hundruð þúsunda viðskiptavina baðstaðarins þangað.

„Eigendur Bláa Lónsins hafa sagt upp samkomulagi við Gray Line um sölu á baðgjaldi í lónið frá 1. apríl síðastliðnum og nýtt samkomulag er ekki í boði. Algjör forsenda þess að geta boðið áætlunarferðir í Bláa Lónið er að viðskiptavinir geti um leið keypt baðgjald.“

Í tilkynningunni segir að áhyggjuefni sé að eigendasamþjöppun af þessu tagi með tilheyrandi samkeppnishindrunum skuli vera að raungerast með svo ógagnsæjum hætti. Það sé ný samkeppnisáskorun sem þurfi þá að takast á við. 

Erlend fyrirtæki í útleigu

Þá þarf Gray Line að bregðast við með því að draga úr vöruþróun og nýsköpun vegna samdráttarins. Sagður er takmarkaður grundvöllur fyrir því að mæta samdrættinum með aukinni útleigu á hópferðabifreiðum. 

Sá markaður breyttist verulega frá og með árinu 2016, þegar virðisaukaskattur var lagður á þessa starfsemi. Við það kom mikil samkeppni með undirboðum frá erlendum hópferðafyrirtækjum. Þessi fyrirtæki koma með hópferðabíla sína til landsins, sniðganga skatta og gjöld og fara ekki eftir íslenskum kjarasamningum. Kostnaður þeirra er þar af leiðandi mun lægri en hjá íslensku fyrirtækjunum sem standa skil á sköttum og gjöldum samkvæmt íslenskum lögum og reglum. Getuleysi stjórnvalda til að taka á þessum undirboðum og lögbrotum er algjört, sem og í fleiri sambærilegum málum er varða erlenda samkeppni í ferðaþjónustunni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK