Óvissa um bein í útreikningum á tollkvótum

Neytendasamtökin og SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu hafa óskað eftir upplýsingum frá atvinnuvegaráðuneytinu um það hvernig staðið hafi verið að útreikningum á tollkvótum á kjöti allt frá því að fyrri samningar við Evrópusambandið um innflutning á landbúnaðarvörum voru gerðir árið 2007.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum sem gagnrýna harðlega boðaðar breytingar á úthlutun tollkvóta þar sem lagt er til að innflutningur á kjöti verði reiknaður sem kjöt með beini en ekki hreint kjöt eins og nú er gert.

Samtökin telja mikilvægt að fá úr því skorið hvort slíkir kvótar á kjöti hafi til þessa verið reiknaðir með beini eða án.

„Ljóst er að boðuð breyting mun fela í sér verulega skerðingu á því magni sem nú er heimilað að flytja inn samkvæmt tollkvótum eða um allt að þriðjung. Ávinningur neytenda yrði því mun minni en gert var ráð fyrir sem er að mati samtakanna óásættanlegt,“ segir í tilkynningunni. 

„Tilgangur hinna auknu tollkvóta er tvíþættur. Annars vegar að veita neytendum aðgang að meira vöruúrvali á samkeppnishæfu verði. Hins vegar að veita innlendri framleiðslu samkeppnislegt aðhald. Með þeim áformum sem stjórnvöld hafa nú kynnt taka stjórnvöld þrönga sérhagsmuni enn á ný fram yfir heildarhagsmuni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK