Tafir hækka verð íbúða um milljónir

mbl.is/Hanna

Tafir á byggingarframkvæmdum geta aukið kostnað við nýjar íbúðir um tugi þúsunda á fermetra. Sá kostnaður getur samanlagt numið milljónum á hverja íbúð. Þetta má ráða af greiningu Vilhjálms Hilmarssonar, hagfræðings hjá Samtökum iðnaðarins.

Tilefnið er umfjöllun í Morgunblaðinu í fyrradag um ítrekaðar tafir á byggingu Höfðatorgs. Þar var rætt við Pétur Guðmundsson, stjórnarformann Eyktar, sem sagði félagið hafa orðið fyrir margvíslegu tjóni vegna hægagangs í afgreiðslu skipulagsyfirvalda hjá borginni. Til dæmis hefði Eykt beðið í 11 mánuði eftir að borgin afgreiddi eignaskiptalýsingu í Bríetartúni 9-11. Þar verða 94 íbúðir og þjónusta á jarðhæð.

Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá Samtökum iðnaðarins, segir tafir á byggingarframkvæmdum í stjórnsýslu sveitarfélaga skapa aukakostnað fyrir samfélagið. Vilhjálmur tók dæmi af kostnaði af eins árs töfum á byggingu 125 fermetra íbúðar í 4-5 hæða fjölbýlishúsi í úthverfi á höfuðborgarsvæðinu. Hækkun fasteignaverðs vegna slíkra tafa geti orðið allt að 50 þúsund krónur á fermetra vegna aukins fjármagnskostnaðar húsbyggjanda. Það leiði aftur til þess að afborganir af 40 ára jafngreiðsluláni hækki um allt að 15-20 þúsund krónur á mánuði. Sú hækkun sé háð samkeppni á markaði og lánaskilmálum.

Nánar má lesa um málið í ViðskiptaMogganum. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK