Sýn hf. hefur gert kröfu á hendur Símanum hf. um greiðsla á skaðabótum vegna tjóns sem félagið telur sig hafa orðið fyrir vegna aðgerða Símans sem Póst- og fjarskiptastofnun komst að niðurstöðu um að hafa falið í sér brot á fjarskiptalögum.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar frá Fjarskiptum, móðurfélagi Sýnar, segir að krafist sé bóta vegna tjóns sem félagið hafi orðið fyrir á tímabilinu 15. október 2015 til 30. júní 2018 og svarar bótakrafan rúmlega 1,9 milljörðum. Þá er farið fram á bætur sem Sýn telur sig enn verða fyrir og það tjón sem það telur sig eiga eftir að verða fyrir á því tímabili þangað til Síminn láti af háttsemi sinni og Sýn hefur unnið til baka töpuð viðskipti.
„Sýn hf. hefur gefið Símanum hf. 15 daga frest til að láta af broti sínu og gera upp skaðabætur miðað við þær forsendur sem krafa Sýnar hf. miðar við. Sýn hf. hefur upplýst Símann hf. um að bregðist Síminn hf. ekki við til samræmis megi búast við að Sýn hf. höfði mál án frekari fyrirvara til heimtu bóta vegna tjónsins sem telst orðið 30. júní 2018 og áskilið sér allan rétt til höfðunar frekari mála vegna þess tjóns sem síðar kemur fram eða ekki telst enn ótímabært að meta,“ segir í tilkynningunni.
Í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnun frá því í byrjun mánaðarins kemur fram að Síminn hafi brotið gegn fjölmiðlalögum með því að beina viðskiptum viðskiptamanna Sjónvarps Símans að tengdu fjarskiptafyrirtæki, allt frá 1. október 2015.
Frétt mbl.isSýn hf. (Vodafone) og Gagnaveita Reykjavíkur efh. (GR) kvörtuðu til PFS yfir meintu broti Símans, en Síminn og dótturfélag hans, Míla ehf., hafa mótmælt því að brot hafi átt sér stað.
Brotið fólst í því að þeir neytendur sem hafa viljað kaupa áskrift að ólínulegu sjónvarpsefni Símans, Sjónvarpi Símans Premium, hafa þurft að vera með myndlykil frá Símanum sökum þess að viðkomandi myndefni hefur síðan 1. október 2015 einungis verið dreift yfir svokallað IPTV-kerfi Símans og myndlykla Símans. Fyrir þann dag var einnig hægt að sjá ólínulegt myndefni Sjónvarps Símans í gegnum kerfi Vodafone.
Síminn hefur gagnrýnt niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og telur hana meðal annars skaðlega samkeppni.