Landsréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, sem hafnað í vor beiðni Valitors um dómkvaðningu tveggja matsmanna í máli fyrirtækjanna Datacell og Sunshine Press Productions (SPP), sem er íslenskt dótturfyrirtæki Wikileaks, gegn Valitor.
Í málinu krefjast fyrirtækin þess að Valitor greiði Sunshine Press Productions tæpa 7,7 milljarða króna í bætur og DataCell um 405 milljónir króna.
Spurningarnar sem biðja átti matsmennina að svara lúta að því hvert fjártjón Datacell og Sunshine Press Productions hafi verið við það að greiðslugátt fyrir Wikileaks hafi verið lokað í 617 daga en fyrirtækin tvö önnuðust rekstur gáttarinnar.
Áður höfðu stefnendur aflað mats dómkvaddra matsmanna sem var lagt fram í dómi fyrir rúmum tveimur árum. Var það niðurstaða þeirra að tjónið væri 3,2 milljarðar kr. Er sú fjárhæð í dag, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá SPP, með dráttarvöxtum og kostnaði 6,7 milljarðar kr.
Í tilkynningunni segir að SPP hafi með þessu unnið „mikilvægan áfangasigur“ í skaðabótamáli sínu gegn Valitor og að með þessu hefjist lokasókn félaganna í málaferlunum.
Valitor lokaði á greiðslugátt fyrir alþjóðleg framlög til WikiLeaks árið 2011 og úrskurðaði Hæstiréttur árið 2013 að lokunin hafi verið ólögmæt og snýst málið nú um fjárhæð skaðabótakröfunnar í málinu.