Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair group, keypti í dag hlutabréf í félaginu fyrir 100 milljónir króna, eða 12.240.000 hluti á genginu 8,17. Keypti Úlfar bréfin í gegnum einkahlutafélagið JÚ ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar vegna viðskipta fruminnherja.
Mikil viðskipti hafa átt sér stað með bréf félagsins það sem af er degi, eða fyrir 1,12 milljarða. Hafa bréf Icelandair hækkað um 2,87% í viðskiptum dagsins og standa nú í 8,22 krónum á hlut. Úlfar er forstjóri Toyota á Íslandi og hefur verið í stjórn Icelandair frá því í september árið 2010.
Fleiri stjórnendur hafa keypt hluti í félaginu að undanförnu, m.a. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í byrjun mánaðarins.