Flugfélagið WOW air ætlar að efna til útsölu á öllum áfangastöðum sínum og verður allt að 40% afsláttur af völdum flugferðum.
Breska blaðið Mirror greinir frá þessu.
Rekstrartap (EBIT) WOW air nam um 45 milljónum Bandaríkjadala, jafngildi 4,8 milljarða íslenskra króna, á tólf mánaða tímabili frá júlí 2017 til júní 2018, að því er kom fram í fjárfestakynningu.
Á meðal áfangastaða sem um ræðir í tilboðinu eru Detroit, Cleveland, Cincinatti, St. Louis og Dallas.
Flugferðirnar verða farnar dagana 27. ágúst til 15. desember.
Tilboðið gildir aftur á móti frá 23. ágúst til 27. ágúst.
Viðskiptavinir þurfa að setja inn kóðann WOWSALE þegar þeir bóka á netinu.