Tveimur síðum hefur verið bætt við fjárfestakynningu WOW air sem sýna meðal annars að afkoma félagsins var jákvæð seinni helming síðasta árs þrátt fyrir að hafa skilað tapi síðustu 12 mánuði. Þá kemur einnig fram að einingakostnaður WOW er um 46% lægri en hjá Icelandair, að því er segir í umfjöllun Túrista.
Kynningin var gefin út sem liður í leit flugfélagsins að fjárfestum. Samkvæmt kynningunni er stefnt að útgáfu skuldabréfa fyrir 500-1.000 milljónir sænskra króna, jafngildi 6-12 milljarða íslenskra króna, sem ætlað er að endurfjármagna skuldir og brúa fjárþörf fram að frumútboði félagsins.
Í upphaflegri kynningu var sagt frá rekstrarniðurstöðu síðustu 12 mánaða, eða frá 1. júlí 2017 til 30. júní 2018. Þar kom fram að rekstrartap félagsins nam 45 milljónum Bandaríkjadala, jafngildi 4,8 milljarða íslenskra króna. Nýju upplýsingarnar frá félaginu segja að rekstrarniðurstaða seinni árshluta 2018 var jákvæð um 10 milljónir dollara, andvirði um milljarð íslenskra króna.
Kostnaður WOW við hvern floginn kílómetra er 4,8 dollarar á sent á móti 9,0 sentum hjá Icelandair, að því er kemur fram í kynningunni. Þá segir einnig að talsverður munur sé ef eldsneyti er ekki tekið inn í reikninginn. Kostnaður WOW á hvern kílómetra án eldsneytiskostnaðar er 3,8 sent á móti 6,8 sentum Icelandair.