Fjarskiptafélagið Nova hefur hleypt af stokkunum nýrri sjónvarpsþjónustu sem fengið hefur nafnið Nova TV. Fyrirtækið hyggst ekki rukka fyrir þjónustuna sem veitir aðgang að öllum opnum sjónvarpsstöðvum á Íslandi og einnig því efni áskriftarstöðvanna sem sýnt er í opinni dagskrá.
Nova hóf í apríl 2016 að bjóða upp á ljósleiðaratengingar. Hægt er að horfa á Nova TV í sjónvarpi í gegnum Apple TV, í snjallsímum og spjaldtölvum á Íslandi, segir í tilkynningu.