Benedikt Gíslason var kjörinn nýr stjórnarmaður Arion banka á hluthafafundi í dag.
Stjórn bankans skipa nú: Eva Cederbalk, formaður, Brynjólfur Bjarnason, varaformaður, Herdís Dröfn Fjeldsted, Måns Höglund, Steinunn Kristín Þórðardóttir og Benedikt Gíslason.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.
Í dag starfar Benedikt sem ráðgjafi og situr í stjórn Genís hf., EC hugbúnaðar ehf. og EC Software Sweden auk þess að vera varamaður í stjórn Brekkuáss ehf.
Benedikt hefur áður m.a. starfað sem ráðgjafi hjá Kaupþingi og hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka auk þess að hafa sinnt margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka.
Benedikt starfaði áður sem framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og hjá eiginviðskiptum og markaðsviðskiptum hjá Íslenska fjárfestingarbankanum (e. The Icelandic Investment Bank – FBA), síðar Íslandsbanki-FBA. Benedikt sat áður í stjórn Kaupþings og VÍS.