Stjórn Orku náttúrunnar hefur sagt Bjarna Má Júlíussyni upp störfum sem framkvæmdastjóra félagsins og ráðið Þórð Ásmundsson til bráðabirgða í starfið. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi félagsins um miðjan dag í gær. Í tilkynningu frá félaginu segir að á stjórnarfundi hafi verið ákveðið að „binda enda á ráðningu fyrrverandi framkvæmdastjóra,“ en Bjarni hefur nú látið af störfum. Auglýsa á starfið laust til umsóknar á næstunni.
Þórður hefur starfað hjá Orku náttúrunnar frá stofnun, árið 2014, fyrst sem verkefnisstjóri og síðan sem forstöðumaður tækniþróunar.
„Starfslok fyrrverandi framkvæmdastjóra tengjast tilvikum þar sem framkoma hans gagnvart samstarfsfólki var óviðeigandi,“ segir í tilkynningunni.
ON er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur og rekur jarðgufuvirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjun í Andakílsá í Borgarfirði. ON selur rafmagn um allt land og hefur síðustu ár haft forystu um uppbyggingu innviða fyrir rafvæðingu samgangna.