Norsk Hydro er hætt við að taka yfir álverið í Straumsvík. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér nú í hádeginu. Þar segir að Norsk Hydro og Rio Tinto hafi skrifað undir samkomulag um að Norsk Hydro hætti við að taka yfir álverið í Straumsvík.
Greint var frá því í mars á þessu ári að norski álframleiðandinn Norsk Hydro ASA hefði gert skuldbindandi tilboð um kaup á öllu útgefnu hlutafé í álverinu í Straumsvík (ISAL) af Rio Tinto og að tilboðið tæki einnig til hollensku skautverksmiðjunnar Aluchemie og sænsku ál-flúoríð verksmiðjunnar Alufluor.
Um var að ræða skuldbindandi tilboð um að kaupa álverksmiðju Rio Tinto, Rio Tinto á Íslandi hf. („ISAL“), 53% hlut Rio Tinto í hollensku skautverksmiðjunni Aluminium & Chemie Rotterdam B.V. („Aluchemie“), og 50% hlut í sænsku ál-flúoríð verksmiðjunni Alufluor AB („Alufluor“) fyrir 345 milljónir Bandaríkjadala, með fyrirvara um aðlögun kaupverðs eftir lúkningu viðskiptanna.
Segir í tilkynningunni að einnig verði hætt við kaupin á Aluchemie og Alufluor.
Samkomulag um kaupin var svo undirritað í byrjun júní á þessu ári í kjölfar funda með starfsmönnum Rio Tinto í Frakklandi og Hollandi. Kaupin voru engu að síður enn háð fjölda skilmála, að því er fram kemur í tilkynningunni, m.a. samþykki íslenska samkeppniseftirlitsins, íslenskra stjórnvalda og samkeppnisaðila.
Upphaflega var búist við að kaupferlinu yrði lokið á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Það hefur hins vegar tekið lengri tíma en talið var að fá samþykki samkeppnisyfirvalda framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og í kjölfar þess fór Norsk Hydro fram á að rifta tilboðinu og hefur sú beiðni nú verið samþykkt.
Norsk Hydro mun þó eftir sem áður eiga 46,7% hlut sinn í Aluchemie.