Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem var sagt upp störfum hjá Orku náttúrunnar fyrir viku, ræddi fyrst við starfsmannastjóra félagsins um framkomu Bjarna Más Júlíussonar, þáverandi framkvæmdastjóra ON, fyrir einu og hálfu ári, vegna óviðeigandi framkomu.
Áslaug, sem gegndi stöðu forstöðumanns einstaklingsmarkaðar hjá ON, tengir uppsögn sína við samtöl og tilkynningar hennar til starfsmannastjórans „við þessa fyrirvaralausu og óútskýrðu uppsögn því engar aðrar málefnalegar ástæður virðast liggja að baki henni – hvorki frammistaða mín í starfi né annað,“ segir Áslaug í Facebook-færslu sem hún birti í morgun.
Einar Bárðarson, eiginmaður Áslaugar, birti færslu á Facebook síðastliðinn miðvikudag þar sem hann gagnrýnir forstjóra í stórfyrirtæki harðlega, en um er að ræða Bjarna, forstjóra Orkuveitunnar. Segir Einar að forstjóranum þyki óviðeigandi hegðun í lagi vegna þess að sá sem hafi sýnt af sér slíka hegðun skilaði svo góðum tölum í rekstri.
Í kjölfarið var Bjarni Már Júlíusson rekinn úr starfi sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur sagði í samtali við mbl.is að eitt óviðeigandi tilvik hefði leitt til uppsagnar Bjarna Más.
Áslaug segir það vera fráleita staðhæfingu, þar sem maður sem verður uppvís af því að senda einn óviðeigandi tölvupóst ætti sannarlega skilið annað ferli en þann tafarlausa brottrekstur sem stjórn ON ákvað.
Áslaug segir að tilvikin séu miklu fleiri en eitt og að hún hafi fyrst veitt því athygli sex mánuðum eftir að Bjarni tók við starfi framkvæmdastjóra.
„Þetta átti við framkomu hans opinberlega og á fundum með viðskiptavinum og á einkafundum kallaði hann samstarfskonur mínar innan og utan ON nöfnum sem enginn á að nota. Hann sakaði undirmann minn um að vera ekki nógu graða og skipulagða þegar hann reyndi opinberlega og í votta viðurvist að “lækna” hana af því meini að vera einhleypa,“ skrifar Áslaug.
Þá segir hún einnig frá því þegar Bjarni sakaði hana fyrir framan starfsmannastjórann á fundi um það að hafa blikkað hana upp í launum í viðræðum við fyrri framkvæmdastjóra. „Ergo: ég væri ekki launanna minna virði eða hreinlega að ég væri vændiskona. Svona mætti halda endalaust áfram,“ skrifar Áslaug.
Áslaug og Einar óskuðu eftir fundi með forstjóra og starfsmannastjóra OR í kjölfar uppsagnar Áslaugar fyrir viku. Síðastliðinn miðvikudag sátu þau fund með forstjóra OR og lögfræðingi félagsins.
„Á fundinum sagði starfsmannastjórinn að hún hefði tekið öll samtölin okkar „alla leið” eins og hún orðaði það. Þetta er gríðarlega mikilvæg staðfesting sem sýnir að yfirlýsingar forstjóra OR standast enga skoðun þegar hann heldur því fram að hann hafi ekkert vitað um framkomu framkvæmdastjórans og að honum hefði verið „illa brugðið” við bréfið frá mér.“
Á fundinum fékk Áslaug einnig þau svör að forstjórinn og starfsmannastjórinn hefðu bæði hafa vitað af þessum „galla” framkvæmdastjórans eins og þau kölluðu það, en ráðið hann engu að síður og með fyrirvara um að hann ynni í þessum „göllum” og héldu því fram að þau hefðu veitt honum „aðstoð” til að vinna með þetta „vandamál,” eins og Áslaug lýsir í færslu sinni.
Áslaug segir fundinn hafa verið vonbrigði. „Fundurinn stóð í 40 mínútur og forstjórinn og starfsmannastjórinn sögðu að lokum að þeim þætti þetta allt mjög leiðinlegt. Ég get engan veginn áttað mig á því fyrir hvern þetta var leiðinlegt í þeirra huga og engar skýringar fékk ég á minni uppsögn,“ skrifar Áslaug. Eftir fundinn birti Einar fyrrnefnda Facebook-færslu.
Áslaug segist ekki líta á uppsögn Bjarna sem sigur fyrir hana. „Ég hef enga unun af því að sjá þennan mann missa æruna og framfærslu sína.“ Áslaug segur hann hafa verið ráðinn í verkefni sem hann réð ekki við úr því hann gat ekki sýnt samstarfsfólki eðlilega virðingu.
„Hann var ráðinn af fólki sem á ekki að velja leiðtoga, því eftir þessa reynslu virðist mér ljóst að þau skilja ekki inntak þess að vera leiðtogi á vinnustað eða mikilvægi þess að athafnir séu í samræmi við orð,“ skrifar Áslaug.
Frá því Bjarna var sagt upp hefur Áslaug ekki heyrt frá stjórnendum fyrirtækisins. „Hvorki forstjóri OR, mannauðsstjóri OR né stjórnarformaðurinn hafa beðið mig velvirðingar á þessari framkomu gagnvart mér eða boðið mér starfið mitt aftur,“ skrifar Áslaug.
Hún hefur ákveðið að leita réttar síns vegna uppsagnarinnar og mun í dag funda með lögfræðingi. „Ég sé ekki að ON, Orkuveitan eða Reykjavíkurborg sýni nokkra viðleitni til að ræða frekar við mig og því síður að leiðrétta það tjón sem ég hef orðið fyrir - að vera rekin fyrir að gera rétt. Rekin fyrir að reyna að verja mig og samstarfskonur mínar,“ skrifar Áslaug.
Hér má lesa færslu Áslaugar í heild sinni: