Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur fengið gæðavottun og framleiðsluleyfi fyrir hátæknisetur fyrirtækisins á Íslandi. Róbert Wessman, stofnandi Alvotech, segir það ánægjulegt að geta nú hafið framleiðslu líftæknilyfja og fljótlega hefjist klínískar lyfjarannsóknir á þeim lyfjum sem koma á markað á næstu árum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir ennfremur, að á aðeins fimm árum hafi Alvotech vaxið í að verða stærsta líftæknifyrirtæki landsins með yfir 200 vísindamenn í vinnu sem vinna að þróun og framleiðslu líftæknilyfja sem séu mikilvæg til meðhöndlunar á ýmsum algengum og erfiðum sjúkdómum eins og gigt og krabbameini.
Framleiðsluleyfi Alvotech er veitt af Lyfjastofnun Íslands sem vann að úttekt á starfsemi fyrirtækisins í samstarfi við írsk lyfjayfirvöld á vormánuðum og nú liggur fyrir formlegt framleiðsluleyfi fyrirtækisins.
Innan hátækniseturs systurfyrirtækjanna Alvotech og Alvogen í Vatnsmýrinni starfa um 250 vísindamenn frá 20 þjóðernum. Höfuðstöðvar Alvotech eru á Íslandi en fyrirtækið hefur einnig starfsstöðvar í Sviss og Þýskalandi. Rasmus Rojkjaer er forstjóri Alvotech.
Alvotech hefur sex líftæknilyf í þróun og stefnt er að því að klínískar lyfjarannsóknir hefjist á næsta ári. Núverandi söluverðmæti þeirra frumlyfja sem nú eru á markaði og Alvotech mun markaðssetja á heimsvísu er um 55 milljarðar Bandaríkjadala á ári. Alvotech stefnir að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með umrædd líftæknilyf þegar einkaleyfi þeirra renna út á næstu árum, að því er segir í tilkynningunni.