Guðrún Johnsen, fyrrverandi varaformaður stjórnar Arion banka, segir það hafa komið flatt upp á sig þegar hún var sett af í stjórn bankans í nóvember 2015, degi eftir að hún óskaði eftir því á stjórnarfundi bankans að gerð yrði könnun á söluferli á hlut bankans í Bakkavör. Gengið var frá sölu eignarhaldsfélagsins BG12 á 45,9 prósenta hlut í Bakkavör í janúar árið 2016 þar sem Arion banki fór með 62 prósenta hlut.
Eignarhluturinn sem seldur var þrefaldaðist í verði á tuttugu mánuðum frá janúar 2016 til nóvember í fyrra og fór úr 147 milljónum punda í 433 milljónir líkt og kom fram í umfjöllun um málið í Fréttablaðinu í morgun.
Í Kastljósi í Ríkisútvarpinu í kvöld segir Guðrún að hún hafi þá verið búin að starfa í stjórn Arion banka í næstum því samfellt í átta ár í farsælu starfi. „Þetta kom á óvart,“ sagði Guðrún og bætti við sérstaklega í því ljósi að ekki hafi verið nema þrír mánuðir til næsta aðalfundar þegar hún var sett af.
Spurð hvort Fjármálaeftirlitið eða bankasýsla ríkisins hefðu átt að grípa inn í söluna á hlut bankans í Bakkavör kvaðst Guðrún vera bundin trúnaðarskyldu og gæti því ekki tjáð sig um einstaka mál eða atriði. Þá sagðist hún aðspurð ekki hafa ástæðu til að ætla að stjórnarmenn bankans hafi ekki borið hagsmuni hluthafa fyrir brjósti við ákvörðun um söluna.