„Við í Seðlabankanum fögnum því að þessi vinna er hafin. Áformin sem kynnt eru í tilkynningu forsætisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins í dag eru mjög í anda þess sem Seðlabankinn hefur látið frá sér fara að undanförnu.“
Þetta segir Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarseðlabankastjóri í tilefni fréttar um sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
„Þá fögnum við því að tekinn skuli af allur vafi um að verðbólgumarkmiðið verði áfram meginmarkmið peningastefnunnar og að virt skuli sjálfstæði bankans og peningastefnunefndar hans til þess að beita stjórntækjum bankans,“ bætir Rannveig við.
Fram kom í fréttinni um sameininguna að meginleiðarljós vinnunnar verði að efla traust, gagnsæi og skilvirkni við yfirstjórn efnahagsmála.
Yfirstjórn verkefnisins verður í höndum ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins sem í sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra.
„Þetta er metnaðarfullt verkefni en það er heilmikil vinna framundan hjá öllum þessum aðilum sem eru kallaðir til að útfæra þetta. Passa þarf upp á að við náum að gera þetta á sem bestan mögulegan hátt fyrir land og þjóð,“ segir Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins í samtali við mbl.is.
Á vegum ráðherranefndarinnar starfar verkefnisstjórn um peningastefnu, þjóðhagsvarúð og fjármálaeftirlit, skipuð af forsætisráðherra. Verkefnisstjórnin skal skila drögum að lagafrumvörpum til ráðherranefndar eigi síðar en 28. febrúar á næsta ári.